Fréttir

Stillingar.is á alla vefi Stjórnarráðs Íslands

15.12.2006

Gerður hefur verið samningur milli Stjórnarráðs Íslands og Hugsmiðjunnar um uppsetningu á Stillingar.is á rúmlega 40 vefjum Stjórnarráðsins.

Þjónustan hefur þegar verið sett upp á tveimur vefjum félagsmálaráðuneytis og stefnt er að því að klára uppsetningu á þeim sem eftir eru fyrir áramótin.

Auk þessa hafa borist fjölmargar pantanir um tengingar við þjónustuna frá fyrirtækjum og stofnunum og eru þær afgreiddar eins fljótt og unnt er.

Óhætt er að setja að Stillingar.is hafi hitt í mark. Með því að nota þjónustuna býðst rekstraraðilum vefja að bæta stórlega aðgengi að þeim og sinna þar með þessari sjálfsögðu kurteisi gagnvart þeim fjölmörgu sem eiga í erfiðleikum með að lesa hefðbundin vefsvæði.

Vefur Stillingar.is.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica