Fréttir

Bréf til viðskipavina

16.1.2007

Ágæti viðskiptavinur.

Þær breytingar hafa orðið á eignarhaldi Hugsmiðjunnar ehf. að Þórarinn Friðjónsson, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, hefur keypt þriðjungshlut í fyrirtækinu af stofnanda þess, Stefáni Baxter. Jafnframt keypti Industria ehf. 20% hlut í fyrirtækinu af Stefáni. Aðrir hluthafar eru Tryggingamiðstöðin hf. og nokkrir lykilstarfsmenn Hugsmiðjunnar.

Undanfarin tvö ár hefur Hugsmiðjan unnið að mjög sérhæfðu verkefni fyrir Industria sem tengist stafrænu sjónvarpi. Stefán Baxter hefur leitt það starf og mun nú hefja störf hjá Industria. Stefán mun þó áfram gegna ráðgjafarstörfum hjá Hugsmiðjunni í hlutastarfi. Samhliða því munu þeir þrír starfsmenn Hugsmiðjunnar, sem hafa sinnt þessu verki eingöngu, skipta um starfsstöð og flytjast til Industria. Þessi breyting hefur því ekki áhrif á þjónustu fyrirtækisins á öðrum sviðum.

Eftir þessar breytingar verða áherslur í starfsemi Hugsmiðjunnar skýrari og starfsmenn munu, eftir sem áður, leggja sig fram um að veita framúrskarandi þjónustu á sviði vefmála fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Kraftar starfsmanna, sem eru 20 talsins, munu nú eingöngu beinast að kjarnastarfsemi fyrirtækisins, sem er uppsetning og þjónusta vegna vefsvæða í Eplica-vefumsjónarkerfinu, sem og þjónusta og ráðgjöf á sviði vefhönnunar, viðmótsforritunar og vefforritunar.

Stefán Baxter mun áfram sitja í stjórn Hugsmiðjunnar og mun að sjálfsögðu vera starfsmönnum og viðskiptavinum fyrirtækisins innan handar. Af þessu tilefni vill hann koma á framfæri kæru þakklæti fyrir samstarfið á liðnum árum.

Starfsmenn Hugsmiðjunnar hlakka til að eiga áframhaldandi samstarf við þig og samstarfsfólk þitt.

Virðingarfyllst,

Þórarinn Friðjónsson,
framkvæmdastjóri.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica