Landsbanki Íslands velur eplica
Eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins, Landsbankinn hyggst færa alla vefi sína í eplica.
Landsbankinn hefur ákveðið að framvegis muni allir vefir keyra í eplica vefumsjónarkerfinu. Landsbankinn hefur rekið metnaðarfulla vefstefnu og mótast valið á eplica á þeirri staðreynd.
Ætlunin er að einfalda rekstur á vefsvæðum en jafnframt að nota vefumsjónarkerfi sem auðveldar starfsmönnum að uppfæra allt efni á vefnum og eplica svarar þessum kröfum frábærlega.
Nú þegar hefur innranet bankans verið fært í eplica ásamt Námunni og byrjað hefur verið á að setja ytri vef bankans í kerfið.
Landsbankinn nýtir sér eplica EE sem er útgáfa fyrir stórfyrirtæki eða stofnanir með margar deildir, mörg lén og hugsanlega starfsemi í mörgum löndum. eplica EE er án takmarkana og hentar bæði fyrirtækjum sem vilja nýta eigin þekkingu og þeim sem hyggjast nýta sér aðkeypta þekkingu sérfræðinga við uppbyggingu og viðhald á vefsvæðum sínum.
-Það er mjög ánægjuleg viðurkenning fyrir eplica að Landsbankinn skuli kjósa kerfið. Bankinn starfar í miklu samkeppnisumhverfi þar sem öryggi og gæði eru í fyrirrúmi. Við erum sérlega ánægðir með þessa nýju viðskiptavini- Segir Stefán Baxter hjá Eplica ehf.
Um Landsbankann
Landsbankasamstæðan samanstendur af:
- Landsbankanum
- Landsbankanum - Landsbréfum
- Heritable Bank í London
og reka allar einingar metnaðarfulla þjónustu við sína viðskiptavini.
Landsbankinn hefur með góðum árangri nýtt sér internetið til að bjóða viðskiptavinum sínum aukna þjónustu.

