Fréttir

eplica á Agora

7.10.2002

Ákveðið hefur verið að kynna eplica vefumsjónarkerfið á Agora sýningunni.

Ákveðið hefur verið að kynna eplica vefumsjónarkerfið á Agora sýningunni. Agora er alþjóðleg fagsýning þekkingariðnaðarins þar sem fyrirtæki og þjónustuaðilar sem starfa í þekkingariðnaði kynna starfsemi sína og framtíðarsýn.
Þar verður kynnt ný útgáfa af kerfinu, eplica 1.2, ásamt ýmsum öðrum nýjungum og má þar helst nefna:

Nýtt fyrirtæki, Eplica ehf. sem mun einbeita sér að sölu og þjónustu til samstarfsaðila eplica.

  • Nýjan vef fyrir eplica kerfið þar sem fjallað er um helstu málefni sem tengjast eplica, nýjir vefir kynntir, þjónustuaðilar, reynslusögur frá viðskiptavinum og fleira
  • Nýjan þjónustuvef fyrir eplica notendur, þar sem aðgengilegt verður hjálparefni, upplýsingar um fáanlegar kerfiseiningar og fleira.
  • 18 nýja vefi sem keyra í eplica kerfinu


Vonumst við til að sem flestir geri sér ferð í básinn okkar í anddyri Laugardalshallarinnar.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica