Fréttir

N1 á stjarnfræðilegum hraða

16.4.2007

Síðastliðinn föstudag var nýtt fyrirtæki, N1 hf., afhjúpað og um leið opnaður nýr vefur sem unninn var af Hugsmiðjunni í Eplica umhverfinu. Þetta verkefni hefur verið unnið mjög hratt, en þrátt fyrir flýtinn hefur verið vandað til verka og afraksturinn er vefur sem bæði Hugsmiðjan og N1 eru stolt af.

Á forsíðu vefsins er á skemmtilegan hátt fléttað saman "hefðbundinni" virkni auglýsingaborða og sjónvarpsauglýsingunni sem unnin var samhliða vefþróuninni og hið nýja fyrirtæki hefur notað til að kynna sig. Þessi samfléttun er unnin í Flash, en notkun þeirrar tækni hefur farið vaxandi í verkefnum Hugsmiðjunnar enda býður hún upp á marga spennandi möguleika ef henni er beitt rétt.


"Þegar ákveðið var að Bílanaust, ESSO og nokkur dótturfélög myndu sameinast í nýtt félag, sem fékk nafnið N1, var augljóst að mikil vinna myndi liggja í því að útbúa heimasíðu sem gæti uppfyllt þarfir okkar viðskiptavina. Flest þessara fyrirtækja héldu úti eigin heimasíðu svo ákveðið var að leita til aðila sem hefði góð meðmæli á markaðnum og gæti aðstoðað okkur við að koma birtingarmynd þeirra fram á þokkalegan hátt. Hugsmiðjan varð fyrir valinu og hefur staðið algerlega undir væntingum. Verkefnið var unnið á stjarnfræðilegum hraða undir óvenjulegum aðstæðum þar sem nafnaleynd hvíldi yfir og var verkið unnið undir mikilli tímapressu. Starfsmenn Hugsmiðjunnar lögðu sig alla fram og unnu dag og nótt til að ná settu marki. Eplica kerfið er einstaklega notendavænt og hefur upp á ýmsar góðar lausnir að bjóða sem við nýtum okkur."

Erna Kristinsdóttir,
deildarstjóri markaðsdeildar, N1 hf.


Hugsmiðjan óska N1 til hamingju með stórglæsilegan vef.

Vefur N1.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica