Fréttir

Nýjar viðbætur í Eplica

29.5.2007

Tvær nýjar viðbætur hafa litið dagsins ljós í Eplica kerfinu, RSS þjónusta og vörn gegn ruslsendingum (spammi). RSS þjónusta gefur notendum kleift að gerast áskrifendur að efni vefsíða og ruslvörnin kemur í veg fyrir að óvelkomið efni rati inn á síður í gegnum vefform. Þessar viðbæturnar hafa verið unnar í tengslum við væntanlega uppfærslu Eplica kerfisins en eru samhæfðar þeim Eplica útgáfum sem nú þegar eru í notkun. Hér að neðan er fjallað um þessar einingar og kostnað við að taka þær í notkun.

RSS þjónusta

RSS táknRSS (Really Simple Syndication) þjónusta gerir vefgestum kleift að gerast áskrifendur að efni vefsíðna með einföldum hætti, þannig að þeir fái tilkynningu í hvert sinn sem nýtt efni er sett inn eða því breytt. Einfaldir RSS-vafrar sjá þá um að athuga reglulega hvort efni síðna hafi breyst og því má líkja RSS upplýsingum við "matseðil dagsins". Vefsvæði gefa út RSS lista yfir nýjasta útgefið efni sem RSS-vafri fylgist með bak við tjöldin og lætur vita ef "nýr réttur" hefur bæst á listann.

Svokallaður "RSS-vafri" sér um samskiptin og til eru fjölmargir ólíkir RSS-vafrar. Flestir netvafrar, eins og Firefox, Internet Explorer 7 og Safari, bjóða nú upp á RSS stuðning en einnig er hægt að nota vefhugbúnað á borð við Google Reader, Yahoo Reader eða Bloglines.com. Einnig er til úrval hugbúnaðar (yfirleitt ódýr eða ókeypis) sem er sérhannaður til RSS lesturs.

RSS áskriftir hafa notið vaxandi vinsælda þeirra sem vilja fylgjst með nýju efni á fjölda vefsvæða, t.d. fréttavefjum eða bloggsíðum. Þjónustan hefur einnig notið vinsælda meðal vefstjóra þar hún eykur mjög sýnileika vefsvæðisins og um leið aðsókn að vefjum þeirra.

Segja má að RSS sé orðin ein algengasta aðferð vefnotenda til að fylgjast með nýjungum á vefsíðum sem þeir hafa áhuga á.

Dæmi um notkun á RSS:

1. Þegar vefsíða býður upp á RSS áskrift birtist lítið RSS tákn í vafranum, í þessu tilfelli, Internet Explorer 7.0:

 

RSS

 

2. Þegar smellt er á táknið opnast ný síða þar sem RSS listinn er sýndur:

 

RSS

 

3. Notendur sem vilja nota vef-vafrann til fylgjast með þessum RSS lista geta smellt á "Subscribe to this feed". Við það verður þessi ákveðna síða að lifandi bókamerki í vafranum sem lætur vita um leið og nýtt efni er birt á síðunni.

 

RSS

 

4. Þeir notendur sem nota annan hugbúnað til þess að halda utan um áskriftirnar sínar, geta afritað slóð RSS listans efst í vafranum (endar á .xml) og notað hana til þess að gerast áskrifendur.

Ruslvörn (spam-vörn)

Ruslsendingar ættu flestir að vera farnir að kannast við. Hingað til hafa ruslpóstar verið algengasta "spamið", en undanfarið hefur færst í vöxt að ruslsendingar birtist á spjallborðum og í athugasemdakerfum vefsíðna. Hugsmiðjan hefur því hannað viðbót við Eplica kerfið sem gerir kleift að setja einfalda ruslvörn á þau vefform sem eru í notkun.

Vörnin virkar þannig að fyrir neðan hvert form kemur lauflétt stærðfræðidæmi sem þarf að svara rétt til þess að geta sent innihald formsins. Með þessum hætti er hægt að hindra sjálfvirkar rusl-vélar í því að senda óvelkomið efni á síðuna, þar sem þær geta ekki svarað spurningum af þessu tagi. Vörnin virkar á allar tegundir vefforma og má því einnig koma í veg fyrir að óþarfar netfangaskráningar sem og ruslpóstsendingar í gegnum vefsíðuna.

 

Spamvörn

Uppsetning og kostnaður

RSS einingin kostar 17.500 krónur (án VSK) og innifalið í því er uppsetning hennar á viðkomandi vefsvæði.

Ruslvörnin sem slík kostar ekkert en vinna við að setja hana upp er 2 klst. fyrir fyrsta vefform og 1 klukkustund fyrir hvert form eftir það. Sé um að ræða mikinn fjölda vefforma gerum við tilboð í verkið.

Nánari upplýsingar um þessar viðbætur og vinnu við að setja þær upp veitir Hugsmiðjan í síma 5500900 eða í gegnum póstfangið sigurjon@hugsmidjan.is.








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica