Gott veður á nýjum vef
Hinn nýi vefur Veðurstofunnar tekur mið af auknum kröfum um myndræna framsetningu upplýsinga og mikil áhersla er lögð á að vefurinn sé einfaldur og þjáll í notkun. Vefurinn hefur fengið aðgengisvottun í forgangi 2, til staðfestingar á því að við uppsetningu hans hefur þess verið gætt að hann nýtist sem best blindum, sjónskertum og öðrum notendum með sérþarfir.
Á vefnum er að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar og fróðleik sem ekki hafa verið á vef Veðurstofunnar fram til þessa. Veftæknin gerir mögulegt að birta mikið magn rauntímaupplýsinga um veður, jarðskjálfta o.fl. á aðgengilegan hátt sem eflaust reynast hvalreki jafnt fyrir veðurgrúskara og allan almenning.
Tengingar við ýmis upplýsingakerfi hafa að mestu leyti verið í höndum starfsmanna Veðurstofunnar.
Við óskum Veðurstofunni til hamingju og vonum að nýja vefnum fylgi bjart og gott veður.

