Fréttir

Hugsmiðjan þjónustar fjármálafyrirtæki

3.10.2007

Nýtt vefsvæði Aurora Holding sem unnið er í Eplica vefumsjónarkerfinu hefur nú verið opnað. Hugsmiðjan sá um útlitshönnun vefsvæðisins, viðmótsforritun og uppsetningu.

Aurora Holding hf. er fjárfestingafélag sem stofnað var af MP Fjárfestingabanka í desember 2006. Félagið stundar fjárfestingar í Austur-Evrópu og ná fjárfestingar félagsins yfir stórt svæði - frá Austurríki til Kasakstan og frá Eystrasaltslöndunum á Balkanskagann.

Með Aurora Holding bætist enn í lista fjármálafyrirtækja í viðskiptamannahópi Hugsmiðjunnar. Meðal fyrirtækja sem við höfum unnið fyrir nýlega má nefna Borgun, Glitni, FL-Group, Kreditkort, MP Fjárfestingarbanka og Straum.

Þessi fyrirtæki hafa nýtt sér mismunandi þjónustuþætti Hugsmiðjunnar, allt frá margvíslegri ráðgjöf og viðmótshönnun til fullbúinna Eplica vefsvæða með tilheyrandi tengingum við fyrirliggjandi upplýsingakerfi.

Hugsmiðjan er stolt af því trausti sem þessi fyrirtæki hafa sýnt okkur og raunar virðist Hugsmiðjan sérlega vel liðin meðal útrásarfyrirtækja. Auk áðurnefndra fjármálastofnana má í viðskiptahópi okkar finna fjölmörg fyrirtæki sem horfa til erlendra markaða, til dæmis Bakkavör, Marel, Icelandic Glacial og Lazy Town.










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica