Fréttir

Nýjasta útlit og vísindi

5.10.2007

Vísindavefur Háskóla Íslands hefur fyrir löngu skipað sér fastan sess sem uppspretta fróðleiks um allt og ekkert. Þar veitist almenningi innsýn í það hugvit sem býr innan veggja Háskólans og eftir rúmlega sjö ára feril inniheldur svarabankinn hátt í 7000 svör við spurningum gesta.

Nú hefur Vísindavefurinn fengið andlitslyftingu sem meðal annars miðast við að auðvelda lesendum að leita í svarabankanum og senda inn fyrirspurnir. Endurhönnunin var í höndum Hugsmiðjunnar og er útlitið vísun í aðalstyrktaraðila Vísindavefjarins, Happdrættis Háskóla Íslands.

Viðmótsforritun var unnin af Hugsmiðjunni og miðaðist við að vefurinn yrði áfram í sama vefkerfi og áður.

Við hjá Hugsmiðjunni vonumst til að andlitslyftingin verði til að bæta og auka enn notkunina á þessum prýðilega vef.

Vísindavefur HÍ - Skjámynd










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica