Fréttir

Vefur Icelandair vinnur til fleiri verðlauna

9.10.2007

Vefur Icelandair.com hlaut nýverið 'Outstanding Achievement Award' á Interactive Media Awards í flokki flugfélaga 2007. Sérstaklega þótti vefurinn vel heppnaður með tilliti til innihalds, notendaviðmóts og hönnunar.

Hugsmiðjan sér um útlitshönnun vefja Icelandair auk þess að hafa bæði hannað og forritað viðmót bókunarvélar félagsins fyrir pakkaferðir. Áður hefur vefur Icelandair unnið til verðlauna sem besti íslenski vefurinn 2007 og alþjóðlegu Technology For Marketing (TFM) verðlaunin fyrir best hannaða vefsvæði ársins.

Viðmótshönnun Hugsmiðjunnar

Hjá Hugsmiðjunni leggjum við metnað okkar í vandaða hönnun og að hugsa tæknilegar lausnir út frá því hvernig þær nýtast notendum. Hönnun notendaviðmóts tilheyra þættir á borð við útlit og framsetningu, skipulagningu verkflæðis og fleira. Vel heppnað viðmót skýrir sig sjálft og styður notendur í því að leysa sín verkefni hratt og örugglega.

Þekking okkar á sviði viðmótshönnunar einskorðast hvorki við Eplica kerfið né veflausnir, heldur getum við veitt ráðgjöf í öllum þeim tilvikum þar sem notendur eiga í hlut. Við getum tekið þátt í viðmótshönnun frá upphafi verkefna, eða komið að úttekt og rýni á viðmóti lausna á öðrum stigum. Reynslan hefur sýnt að besta niðurstaðan fæst þegar hugað er að viðmótshönnun samfellt í gegnum allt verkferlið.

Samstarf við Hugsmiðjuna er því sterkur leikur fyrir fyrirtæki sem hafa þörf fyrir öfluga málsvara notenda í vinnsluferlum eða vilja bæta viðmót lausna sem þegar eru í rekstri.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica