Fréttir
Fjölþætt þjónusta Borgunar á nýjum vef
Vefur fyrir Borgun opnaði sumardaginn fyrsta. Útlit unnið af Hvíta húsinu en vefurinn er að öðru leyti unninn af Hugsmiðjunni og keyrir í Eplica kerfinu. Fjölbreytilega þjónusta er fyrir viðskiptavini Borgunar á vefnum.
Borgun starfar á sviði greiðslumiðlunar og er leiðandi í þróun viðskiptalausna og þjónustu við korthafa og banka og sparisjóði sem gefa út MasterCard og Maestro greiðslukort. Fyrirtækið er einnig í fararbroddi í þjónustu við seljendur sem veita MasterCard, Maestro, American Express, JCB og DinersClub greiðslukortum viðtöku.
Fyrirtækið hefur sterk alþjóðatengsl og hefur sett sér að vera eftirsóttasti samstarfsaðili Íslands á sviði greiðslumiðlunar og tengdrar starfsemi.
