Fréttir

Auður = fé og hamingja

2.6.2008

Auður Capital er nýtt fjármálafyrirtæki stofnað af þeim Höllu Tómasdóttur og Kristínu Pétursdóttur. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu stofnenda, starfsmanna og valinkunnra athafnakvenna. Auður hefur starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki og starfar undir eftirliti FME. AUÐUR er íslenskt kvenmannsnafn sem þýðir í senn fé og hamingja.

Auður Capital er óháð fjármálafyrirtæki sem býður fjárfestingatengda þjónustu á sviði eignastýringar, fjárfestinga og fyrirtækjaráðgjafar. Fyrirtækið er meðvitað um áhættu og samfélagslega ábyrgð og óhrætt við að beita kvenlægari nálgun við fjármál og fjárfestingar. Langtímaárangur og gagnkvæmur ávinningur eru hornsteinar í hugmyndafræði Auðar.

Forsíða vefs Auðar CapitalAuður Capital leitaði til Hugsmiðjunnar með vefsíðugerð frá a-ö. Fyrirtækið er með nýjar áherslur og ferska ímynd og vefurinn átti að endurspegla það. Útlit er unnið af Hugsmiðjunni og vefurinn keyrir í Eplica kerfinu.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica