American Express á Íslandi
Alþjóðlegt stórfyrirtæki í Eplica
Á sumardaginn fyrsta opnað vefur American Express á Íslandi. Kreditkort er samstarfsaðili American Express á Íslandi og er ábyrgt fyrir öllum færslum viðskiptavina American Express hér á landi.
Starfsmenn Hugsmiðjunnar eru stoltir af því að Eplica varð fyrir valinu sem vefumsjónarkerfi fyrir þennan stóra alþjóðlega viðskiptarisa. American Express er 15. verðmætasta vörumerki í heimi 2007 að mati BusinessWeek (Google 20., Nike 29. og Visa nær ekki inn á listann). Útlit vefsins byggir á alþjóðlegum hönnunarstaðli fyrir American Express vefi, en var aðlagað af Hvíta húsinu.
Umsóknir um kort eru skráðar á vefnum og þar eru "mínar síður" fyrir korthafa þar sem hægt er að fylgjast með hreyfingum á kortinu.
Kreditkort hf var stofnað árið 1980 og var fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem bauð upp á kreditkort. Kreditkort hefur verið brautryðjandi á þessu sviði á Íslandi. Kreditkort er markaðsleiðandi þegar kemur að nýjungum og hefur ávallt sett viðskiptavini í forgang. Kreditkort gefur út sín eigin kort beint til viðskiptavina. Kreditkort hefur lengi verið viðskiptavinur Hugsmiðjunnar og nýtir sér Eplica kerfið.

