Fjölmenningarsetur á fjölmörgum tungumálum
Nýr vefur Fjölmenningarsetur er fjölþjóðlegur í besta lagi og ætlaður sem upplýsingaveita um íslenskt samfélag fyrir innflytjendur og aðra þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Veittar eru upplýsingar um flesta mikilvægustu þætti sem þessir aðilar þurfa á að halda á nokkrum tungumálum.
Hugsmiðjan hannaði vefinni og hann nýtir hina fjölbreyttu möguleika Eplica kerfisins. Nefna má UTF-8 leturstaðalinn sem er eitt af lykilatriðum í nýrri útgáfu Eplica kerfisins og gerir það kleift að skrifa og birta efni á hvaða tungumáli sem er. Skemmtileg lausn er á því hvernig upplýsingar um einstök sveitarfélög eru birt með skýrum og þægilegum hætti.

