Fréttir

Skjárinn

2.6.2008

Skjárinn opnaði í dag nýjan og glæsilegan Eplica vef, en Skjárinn færir áhorfendum ókeypis sjónvarpsstöð með fyrsta flokks afþreyingu og gagnvirkt sjónvarp, fyrst allra á Íslandi.

Á vefnum er hægt að skoða dagskrá vikunnar á Skjá einum, horfa á íslenska þætti í gegnum vefsjónvarp og sjá myndbrot úr erlendum þáttum og bíómyndum. Einnig er hægt að vafra um Skjárbíó á vefnum þar sem hægt er að skoða allar nýjustu myndirnar sem komnar eru á VOD-ið, vinsælustu o.s.frv.

Töluvert er um sérunna og spennandi viðmótsforritun og sýnir vefurinn vel hvaða möguleikar eru í boði fyrir lifandi viðmót á "hefðbundnu vefsvæði".

Útlitshönnun, ráðgjöf, forritun og uppsetning var öll í höndum Hugsmiðjunnar og erum við stolt af því Skjárinn hafi valið okkur sem samstarfsaðila.

Vefur Skjásins

www.skjarinn.is










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica