Hugsmiðjan nær samningi um baráttu gegn spillingu í Evrópu
Spennandi Eplica 2.0 samningur
Aðildarstofnanir og félög EHFCN eru um 30 talsins í 16 löndum og tengjast heilbrigðisþjónustu á svæðum þar sem búa yfir 350 milljón manns. Tryggingastofnun ríkisins er aðili að þessum samtökum.
Hugsmiðjan mun sjá um ráðgjöf, hönnun og forritun á nýjum vef samtakanna sem byggður verður á vefumsjónarkerfinu Eplica sem er alíslensk hönnun. Nýr vefur mun geyma upplýsingar um samtökin ásamt því að vera aðgangsstýrður samráðsvettvangur fyrir fagaðila í Evrópu sem vinna gegn tryggasvikum og spillingu á heilbrigðissviði.
Að sögn Ragnars Marteinssonar framkvæmdastjóra Hugsmiðjunnar felst mikil viðurkenning í þessum samningi á því að íslenskt hugvit standist fyllilega samanburð við það besta í Evrópu. Það er góð tilfinning að taka þátt í útflutningi á íslensku hugviti og þetta er bara byrjunin hjá Hugsmiðjunni, sagði Ragnar.
