Fréttir

Hugsmiðjan semur við ESA

31.3.2009

Hugsmiðjan hefur samið við ESA, Eftirlitsstofnun EFTA um veflausnir fyrir samtökin.

Undirritun samnings við ESASkammt er síðan Hugsmiðjan samdi við European Healthcare Fraud & Corruption Network samtökin en báðar þessar stofnanir eru staðsettar í Brussel. Í samningnum við ESA felst að Hugsmiðjan sér um allar veflausnir fyrir stofnunina sem verða keyrðar í Eplica vefumsjónarkerfinu sem er alíslensk hönnun.

Þetta er enn og aftur mikil viðurkenning á íslensku hugviti og erum við hjá Hugsmiðjunni sæl og glöð með að hafa fengið þetta mikilvæga verkefni. Um leið er þetta mikil áskorun og hvetur okkur áfram til dáða sagði Ragnar Marteinsson framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar.

Fjögurra manna sendinefnd kom frá Brussel í lok mars og voru samningar undirritaðir í húsakynnum Hugsmiðjunnar að Snorrabraut 56 í Reykjavík.  Á myndinni er Ólafur Aðalsteinsson Deputy Director hjá ESA og Ragnar Marteinsson framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar.










litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica