Fréttir

Vatnsafl og jarðvarmi á netið

9.2.2009

Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma hefur nú fengið sitt pláss á veraldarvefnum með nýjum vef í Eplica-kerfinu frá Hugsmiðjunni.

Sýn Íslendinga á beislun innlendra orkugjafa hefur breyst. Samstaða hefur verið um virkjun heita vatnsins frá lághitasvæðum til upphitunar og framan af um framleiðslu rafmagns með beislun fallvatna. Uppgangur stóriðju og aukin virkjun fallvatna og háhitasvæða í þeirra þágu hefur kallað fram raddir náttúruverndar, sjálfbærrar þróunar og útivistar. Rammaáætlun um nýtingu vatnaafls og jarðvarma er matsferli á virkjunarkostum og náttúrugæðum sem leitar málamiðlunar milli verndar,  annarrar nýtingar náttúrugæða og orkuframkvæmda.

Markmið Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma er að meta og forgangsraða á faglegan og hlutlægan hátt vernd og nýtingu íslenskrar náttúru gagnvart virkjunarkostum fallvatna og háhitasvæða. Leggja skal mat á og flokka virkjunarkosti eftir orkugetu, hagkvæmni, þjóðhagslegu gildi og áhrifum á náttúrufar og minjar,  og einnig að skilgreina og meta hagsmuni þeirra sem nýtt geta þessi sömu gæði með öðrum hætti.

Þessi faglega úttekt verður grundvöllur stjórnvalda til að stuðla að sátt andstæðra sjónarmiða verndunar náttúrunnar og nýtingar íslenskra orkulinda.

Vefur Rammaáætlunarinnar er ríkur af upplýsingum og gefur glögga mynd af viðfangsefninu. Hugsmiðjan óska aðstandendum vefsins til hamingju með vefinn.








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica