Fréttir

Grunur um refsiverða háttsemi

9.2.2009

Vefur sérstaks saksóknara hefur verið opnaður í Eplica-kerfinu til að auðvelda aðgengi að upplýsingum og auðvelda almenningi að koma upplýsingum á framfæri.

Embætti sérstaks saksóknara var komið á fót til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og í kjölfar atburða sem leiddu til svonefnds „bankahruns“ á Íslandi um mánaðamótin september/október árið 2008.

Embættinu er ætlað að rannsaka grun um refsiverða háttsemi hvort sem hún tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga. Eftir atvikum skal fylgja rannsókn eftir með saksókn.

Vefsetur embættis sérstaks saksóknara hefur tvíþætt hlutverk:

  • að auðvelda almenningi að hafa samband við embættið og koma á framfæri ábendingum og gögnum.
  • að koma á framfæri upplýsingum um embættið, þ.e. hlutverk þess og skipan, og fréttum af starfsemi embættisins.

Vefur sérstaks saksóknara er skýr og greinargóður og gefur glögga mynd af starfsemi embættisins.











litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica