Fréttir

Einkaleyfi á Internetinu

3.3.2009

Vefur Einkaleyfastofu hefur verið settur í loftið í Eplica-kerfi Hugsmiðjunnar. Hlutverk stofnunarinner er að fara með málefni er varða einkaleyfi o.fl.

Einkaleyfastofan er ríkisstofnun undir yfirstjórn viðskiptaráðherra. Stofnunin tók til starfa 1. júlí 1991 og tók þá við hlutverki einkaleyfa- og vörumerkjadeildar iðnaðarráðuneytisins. Hlutverk stofnunarinnar er að fara með málefni varðandi einkaleyfi, vörumerki, hönnunarvernd, byggðarmerki og önnur hliðstæð réttindi sem kveðið er á um í lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar. Stofnuninni ber að veita einstaklingum, stofnunum og atvinnufyrirtækjum upplýsingar og ráðgjöf varðandi hugverkaréttindi í iðnaði. Þá ber stofnuninni að stuðla að því að ný tækni og þekking sem felst í skráðum hugverkaréttindum verði aðgengileg almenningi.

Vefur Einkaleyfastofu er einkar fróðlegur og þar má meðal annars finna skráningu á vörumerkinu Eplica. Hugsmiðjan óska stofnuninni til hamingju með vefinn.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica