Listahátíð í Eplica
Hlutverk Listahátíðar er að skipuleggja og standa að árlegum Listahátíðum í Reykjavík á sviði tónlistar, leik- og danslistar, bókmennta, myndlistar, hönnunar og fleiri listgreina. Hafa skal metnaðarfulla listsköpun að leiðarljósi og kappkostað að tefla fram framúrskarandi listafólki af hinu alþjóðlega sviði og því besta sem býr í listmenningu þjóðarinnar. Sérstaka áherslu ber að leggja á nýsköpun og aðra þá þætti íslenskrar menningar sem skapa henni sérstöðu í samfélagi þjóðanna.
Vefurinn er umfangsmikill og þar er m.a. hægt að skoða alla atburði hverrar hátíðar og kaupa miða á þá. Eldri hátíðir hafa sérstakt svæði á vefnum og er hægt að skoða atburði á þeim aftur til ársins 2004.
