Fréttir

Varnir landsins í öruggum höndum

1.6.2009

Hugsmiðjan opnar nýjan vef Varnarmálastofnunar í Eplica-kerfinu.

Varnarmálastofnun Íslands sinnir ýmsum varnartengdum verkefnum. Þeirra á meðal er rekstur íslenska loftvarnarkerfisins, sem er hluti af samhæfðu loftvarnarkerfi Atlantshafsbandalagsins. Ratsjár- og fjarskiptastöðvar í öllum landshornum eru grunnur þess kerfis. Í lýðræðisríkjum er talið nauðsynlegt í þágu réttaröryggis að greina á milli varnartengdra verkefna annars vegar og borgaralegra verkefna sem lúta að löggæslu og öryggisgæslu í þágu innra öryggis ríkisins hins vegar. Vegna þessa tíðkast ekki í ríkjum, sem við eigum mest samstarf við, að fela lögreglu og slíkum stofnunum verkefni sem snúa að ytra öryggi ríkja.










litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica