Hugsmiðjan leitar að viðmótsforriturum
Umsækjendur þurfa hvoru tveggja að geta ofið útlit vefsvæða með CSS ásamt því að geta forritað lifandi viðmótsvirkni í Javascript. Yfirgripsmikil þekking á nýjustu veftækni er lykilatriði.
Starfsreynsla, sköpunargáfa, útsjónarsemi, öguð vinnubrögð og brennandi áhugi á faginu eru kostir sem jafnframt verður horft til. Reynsla af Flash, PHP, Python, Java, ASP eða öðru forritunarumhverfi er einnig kostur.
Hugsmiðjan er öflugt og traust fyrirtæki og hefur síðustu 8 ár verið þekkt fyrir að hafa yfir að ráða einu öflugasta teymi viðmótsforritara á Íslandi. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og duglegu starfsfólki bjóðast ótal tækifæri til nýsköpunar og sjálfsnáms.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið hér á heimasíðu Hugsmiðjunnar, eða senda umsókn á umsokn@hugsmidjan.is ásamt ferilskrá.
