Hugsmiðjan leitar að java forriturum
Starfsreynsla, sköpunargáfa, útsjónarsemi, öguð vinnubrögð og brennandi áhugi eru kostir sem jafnframt verður horft til. Reynsla af notkun eða þekking á eftirfarandi mun vega töluvert í mati á umsækjendum: J2EE, JSP, HTML, Tomcat, XML-vefþjónustur, Maven, MySQL, Oracle, MsSQL, SVN, HTTP, Hibernate og JavaScript.
Hugsmiðjan er öflugt og traust fyrirtæki og hefur síðustu 8 ár haft yfir að ráða einu öflugasta veflausnateymi landsins. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og duglegu starfsfólki bjóðast ótal tækifæri til nýsköpunar og sjálfsnáms.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið hér á heimasíðu Hugsmiðjunnar, eða senda umsókn á umsokn@hugsmidjan.is ásamt ferilskrá.
