Hugsmiðjan leitar að bókara
Hugsmiðjan óskar eftir starfsmanni til að sjá um bókhald, innheimtu og tengd störf í um 50% starf.
Góð þekking á bókhaldi og innheimtu er nauðsynleg sem og starfsreynsla á því sviði. Þekking á dk-hugbúnaði æskileg. Starfið krefst nákvæmni og skipulagðra og agaðra vinnubragða.
Hæfniskröfur og reynsla
- Góð þekking á bókhaldi og innheimtu er nauðsynleg sem og starfsreynsla á því sviði.
- Þekking á dk-hugbúnaði er æskileg.
- Starfið krefst nákvæmni, skipulags og sjálfstæðra vinnubragða.
Hugsmiðjan er traust fyrirtæki og hefur yfir að ráða einu öflugasta veflausnateymi landsins. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og duglegu starfsfólki bjóðast ótal tækifæri til nýsköpunar og sjálfsnáms. Hugsmiðjan leggur áherslu á fjölskylduvæna starfsmannastefnu.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Hugsmiðjunnar, www.hugsmidjan.is, eða senda umsókn á umsokn@hugsmidjan.is ásamt ferilskrá.
Umsóknarfrestur rennur út 6. febrúar.
