Ragnheiður H. Magnúsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar
Ragnheiður er vélaverkfræðingur að mennt og hefur mikla reynslu af stjórnun í hugbúnaðargeiranum, til dæmis sem verkefnastjóri fyrir vöruþróun hjá Símanum og framkvæmdastjóri hjá Mentis Software.
„Ég hlakka til að fara að vinna með þessum hæfa hópi starfsmanna hjá Hugsmiðjunni og taka þátt í þeim skemmtilegu verkefnum sem fyrirtækið er að kljást við“, segir Ragnheiður.
Fráfarandi framkvæmdastjóri, Þórarinn Friðjónsson, lætur af störfum að eigin ósk, en mun starfa áfram fyrir félagið.

