Forritari óskast til starfa
Forritari óskast í fullt starf
Vegna vinsælda þurfum við að ráða metnaðarfullan og snjallan javaforritara sem vinnur vel í teymi. Kostur ef viðkomandi þekkir til Agile verklags.
Hjá Hugsmiðjunni starfa 25 starfsmenn sem búa yfir einstakri sérfræðiþekkingu á sviðum aðgengilegrar hönnunar, vefsamskipta og hugbúnaðarhönnunar.
Við leggjum okkur fram um að vera fyrsta flokks vinnustaður sem laðar að sér framúrskarandi starfsfólk.
Hvernig á að sækja um
Áhugsamir sendi ferilskrá á ragnheidur@hugsmidjan.is
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar.

