Fréttir

Skerpla hf. velur eplica 

1.9.2002

Skerpla hf. hefur valið eplica sem vefumsjónarkerfi fyrir nýjan vef sinn Skip.is

Skip.is er ætlað að verða alhliða þjónustuvefur fyrir farmenn og fiskimenn með upplýsingum  og fréttaflutningi af þeim málefnum sem þá varða.

Um Skerplu ehf

Skerpla ehf. sem stofnað var árið 1992 er útgáfu- og upplýsingafyrirtæki sem sérhæfir sig í útgáfu á efni fyrir sjávarútveg, á hvaða formi sem hentar viðskiptavinum þess.

Flaggskip útgáfunnar eru Sjómannaalmanak Skerplu, ársrit sem kom fyrst út árið 1996, og Heimahöfn Skerplu á netinu, upplýsingahöfnin. Starfsmenn Skerplu kappkosta að veita viðskiptavinum sínum eins góða þjónustu og þeim er unnt.

Um eplica:

Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.

eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.

Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.

Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica