Fréttir

Skip.is í loftið

1.10.2002

Nýr og glæsilegur vefur Skerplu hf., Skip.is er kominn í loftið

Nýverið var vefnum Skip.is ýtt úr vör og hefur hann nú þegar fengið frábærar móttökur. 

"Við vitum hvert við ætlum og eplica hjálpar okkur þangað"  segir Þórarinn Friðjónsson framkvæmdastjóri Skerplu ehf
Á Skip.is verður rekin metnaðarfull fréttaþjónusta og upplýsingaveita um skip, hafnir og fyrirtæki sem þjónusta farmenn og fiskimenn.

Vefurinn var ekki búinn að vera margar klukkustundir í loftinu þegar Morgunblaðið var byrjað að vitna í hann. 

Ritstjóri vefsins er velþekktur innan geirans, Eiríkur St. Eiríksson, sem áður starfaði hjá InterSeafood.com og þar áður hjá Fiskifréttum.

Hönnun vefsins var í höndum Nýjasta tíska og vísindi en um smíði og uppsetningu sáu starfsmenn eplica.

Um Skerplu ehf

Skerpla ehf. sem stofnað var árið 1992 er útgáfu- og upplýsingafyrirtæki sem sérhæfir sig í útgáfu á efni fyrir sjávarútveg, á hvaða formi sem hentar viðskiptavinum þess.

Flaggskip útgáfunnar eru Sjómannaalmanak Skerplu, ársrit sem kom fyrst út árið 1996, og Heimahöfn Skerplu á netinu, upplýsingahöfnin. Starfsmenn Skerplu kappkosta að veita viðskiptavinum sínum eins góða þjónustu og þeim er unnt.

Um Nýjustu tækni og vísindi

Nýjasta tíska og vísindi er eitt af nýrri hönnunarhúsum landsins.  Starfsmenn fyrirtækisins eru þó með áralanga reynslu af miðlun rafrænna upplýsinga, annarri grafískri vinnslu og framleiðslu markaðs­efnis.

Um eplica:

Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.

eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.

Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.

Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica