Fréttir

Nýr og ferskur vefur Íslandssíma í loftið

13.3.2002

Íslandssími hf. opnaði nýlega endurnýjaðan vef sinn sem keyrir í eplica vefumsjónarkerfinu

Íslandssími mun nýta eplica til að auðvelda starfsmönnum sínum að uppfæra efni vefsvæðisins.   Vefurinn var settur upp af starfsmönnum Eplica ehf. en hönnun var í höndum starfsmanna Íslandssíma.

Á vefnum geta viðskiptavinir fengið upplýsingar um þjónustleiðir sem  boðið er upp á auk þess að geta nýtt sér ákveðnar vefþjónustur eins og Kjarninn og  Nethjálp.

Um Íslandssíma hf.

Íslandssími er alhliða fjarskiptafyrirtæki sem keppir að því að vera í forystu um að bjóða traustar og hagkvæmar heildarlausnir í fjarskiptum. Íslandssími þjónar jafnt fyrirtækjum sem heimilum með almennri símaþjónustu, farsímaþjónustu, internetþjónustu og gagnaflutningsþjónustu. Íslandssími hámarkar styrk sinn með samstarfi við leiðandi fyrirtæki og sjálfvirkni í þjónustu.

Íslandssími skilgreinir sig sem næstu kynslóðar fjarskiptafyrirtæki sem er laust við fjárfestingabyrðar vegna úrelts búnaðar og skipulags. Áhersla félagsins er á lausnir og þjónustu sem gera fjarskipti skilvirkari og traustari.

Um eplica:

Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.

eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.

Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.

Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica