Greinar

Um mat á aðgengileika opinberra veflausna 2011

24 jan. 2012

Við í Hugsmiðjunni viljum koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við framkvæmd og niðurstöður aðgengishluta úttektarinnar Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011:

Í fyrri útektum var byggt á sérfræðingsmati á aðgengi hvers vefsvæðis, en í ár var matið nær eingöngu í höndum sjálfvirkra forrita1 sem framkvæma afskaplega frumstæðan kóðayfirlestur. Sérfræðingar í aðgengi fatlaðra komu hvorki að framkvæmdinni né vali á aðferðafræði og uppbyggingu einkunnagjafarinnar að þessu sinni.

Útkoman er aðgengiseinkunn sem er nánast handahófskennd, gefur ekki lýsandi mynd af ástandi aðgengismála og er sér í lagi ekki á neinn hátt samanburðarhæf við aðgengisniðurstöður fyrri úttekta á árunum 2005, 2007 og 2009.

Sem dæmi má nefna að vefur Veðurstofunnar, með 2. stigs aðgengisvottun ÖBÍ, fékk einkunnina 100% fyrir aðgengi árin 2007 og 2009, en fær nú aðeins 22% í einkunn án þess að teljandi breytingar hafi orðið á vefnum. Eins má finna dæmi um vefi sem hafa hækkað um tugi prósentustiga í einkunn, nánast óbreyttir.

Mat á aðgengi veflausna er í eðli sínu flóknara en svo að það verði gert með sjálfvirkum kóðayfirlestri. Aðgengi snýst að stóru leyti um samhengi og skiljanleika - og jafnvel kóðaþátturinn er flóknari en svo að hann verði rétt dæmdur með sjálfivirkum hætti. Aðgengissérfræðingar nota vissulega stundum sjálfvirk yfirlestrartól en þá eingöngu til að leita að vísbendingum um hindranir - sem eru svo metnar sérstaklega hver fyrir sig.


Við hjá Hugsmiðjunni erum, nú sem endranær, dyggir aðdáendur langtímaverkefnisins Hvað er spunnið í opinbera vefi og fögnum þeim jákvæðu áhrifum sem verkefnið hefur haft. Það hryggir okkur því að komast að raun um að þessu sinni séu 25% heildareinkunnar hvers vefsvæðis byggð á jafn hæpnum forsendum og raun ber vitni.

Þeir vefir sem við eigum í úttektinni að þessu sinni koma vissulega mjög vel út (meðal aðgengiseinkunn 75%) og mun betur en í síðustu könnun 2009. Hins vegar sjáum við víða óeðlilega stór stökk í aðgengiseinkunnum einstakra vefsvæða, bæði upp og niður, sem aðeins er hægt að útskýra með því að matsaðferðin sé gölluð.

Við erum því í þeirri erfiðu stöðu að þurfa að hughreysta suma vefstjóra sem fengu óeðlilega lága aðgengiseinkunn, en jafnvel hryggja aðra sem fengu óeðlilega háa einkunn.


Það er mat okkar að heppilegast væri að aðgengisþáttur úttektarinnar Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011 yrði endurmetinn frá grunni af sérfræðingi, og einkunn allra vefsvæða endurreiknuð til samræmis við þær niðurstöður. Þannig væri tryggt að nýjasta einkunninn nýttist til samanburðar við úttektir fyrri ára. Að öðrum kosti væri eðlilegast að aðgreina þessa nýju aðgengiseinkunn frá þeim gömlu til að koma í veg fyrir ómarktækan samanburð og minnka vægi aðgengisþáttarins niður í ca. 5% af heildareinkuninni.


Virðingarfyllst,
Starfsfólk Hugsmiðjunnar ehf.


1) Minnst 80% aðgengiseinkunarinnar ræðst af niðurstöðum http://achecker.ca/ og http://wave.webaim.org/







litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica