Greinar

Vitnisburðir um eldri verkefni

11 Jan 2007

Eftirfarandi eru umsagnir viðskiptavina um verkefni sem eru ekki lengur glæný, en við viljum meina að vinnubrögð okkar hafi ekki dalað síðan þessi verkefni voru unnin.


Ferðaskrifstofa Íslands

Merki Úrvals ÚtsýnarÞegar við hjá Ferðskrifstofu Íslands ákváðum að endurnýja vefsvæði félagsins varð Eplica kerfi Hugsmiðjunar fyrir valinu. Fjölmargir þættir réðu vali okkar á Eplica sem lausn fyrir vefþjónustur Ferðaskrifstofu Íslands. Fyrst má nefna þá staðreynd að kerfið byggir á traustum tæknilegum grunni sem féll einkar vel að uppbyggingu vefþjónustu fyrirtækja í eigu Flugleiða samsteypunnar.

Jafnframt teljum við að sú áhersla á gæði sem Hugsmiðjan hefur að leiðarljósi við þróun og endurbætur Eplica vefumsjónarkerfinu afar mikilvæga fyrir okkur. Gildir þetta bæði um rekstrar þátt kerfisins og ekki síður þau notendaskil sem kerfið býður þeim sem ætlað er að sjá um viðhald og endurbætur á vefþjónustum okkar.

Við virkjum allt starfsfólk okkar í umsjón og viðhald á þeim vefsvæðum sem við höldum úti og það er því afar mikilvægt að tryggja að það sé bæði þægilegt og einfalt að uppfæra og breyta efni eftir því sem við á. Jafnframt höfum við notið góðs af þjónustu Hugsmiðjunar við þróun á vefnum. Áhersla okkar er á notkun W3C staðla í allri vefþróun okkar, enda viljum við tryggja aðgengi sem allra flestra að vefþjónustum okkar. Nú þegar er ljóst að árangurinn af þessu samstarfi hefur orðið til þess að vefsala ferðaskrifstofunnar hefur staðist væntingar og gott betur.

Sigmundur Halldórsson
Vefstjóri Ferðaskrifstofu Íslands

Framhaldsskóli Snæfellinga

"Við erum mjög ánægð með vefinn, bæði er einfalt og auðvelt að setja efni inn á hann, breyta og laga. Þegar við höfum þurft á aðstoð að halda hefur hún verið auðfengin hjá þeim Hugsmiðjumönnum því þeir eru mjög liprir og snöggir að bjarga málunum.

Einnig má nefna að vefnum hefur bæði verið hrósað fyrir skemmtilegt útlit og þægilegt aðgengi að hinum ýmsu köflum hans."

Guðbjörg Aðalbergsdóttir
skólameistari

Global Event Network

"Það kom mér skemtilega á óvart hversu stuttan tima það tók að gera þennan vef og hversu auðvelt ég á með að uppfæra hann."

Ísleifur Þórhallsson
framkvæmdastjóri

Hex hugbúnaðarhús

Merki heX ehfÞað er þægilegt að vinna með fyrirtækjum þar sem tæknileg útfærsla vefst ekki fyrir mönnum og hægt er að mæta þörfum viðskiptavinarins hratt og vel. Hugsmiðjan lagði sig fram um að greina þarfir okkar, leiðbeina okkur um framsetningu og hafa alltaf verið snarir í snúningum við að aðstoða okkur þegar þörf hefur verið á www.hex.is

Þórarinn Stefánsson
Framkvæmdastjóri Hex Hugbúnaðar

Íslandsdeils Amnesty International

Merki Amnesty InternationalEplica er þægilegt í notkun, og okkur tekst prýðilega að halda út lifandi vef, eftir að ákveðinni grunnfærni hefur verið náð. Viðr erum nú að ná meiri árangri á vefnum okkar nú en nokkru sinni fyrr.

Torfi Jónsson
Verkefnastjóri, Íslandsdeild Amnesty International

Kvennaathvarfið

Merki KvennaathvarfsinsEplica gerir Samtökum um kvennaathvarf mögulegt að halda úti öflugum netmiðli og mætir okkar þörfum fullkomlega í því tilliti. Góður hugbúnaður og skjót sem þæginleg þjónusta hefur einkennt Hugsmiðjuna og gerir öll samskipti hin ánægjulegustu.

Drífa Snædal
fræðslu- og framkvæmdarstýra, Samtaka um kvennaathvarf

Námsgagnastofnun

"Námsgagnstofnun valdi Eplica vefumsjónarkerfið vegna þess hversu sveigjanlegt það er. Kerfið er auðvelt í notkun og gefur mikla möguleika á að laga vefinn að hugsanlegum breytingum í framtíðinni. Samskipti við starfsmenn Hugsmiðjunnar hafa verið einkar ánægjuleg."

Hildigunnur Halldórsdóttir
Tölvunarfræðingur, Námsgagnastofnun

Pegasus Panarctica

Merki PegasusPegasus Panarctica er lítið fyrirtæki sem hefur mikla sérþekkingu á sviði framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis. Framleiðsla innlendra auglýsinga er töluverð en lang stærsti hluti tekna kemur af framleiðslu erlendra verkefna. Ísland er vinsæll tökustaður enda íslensk náttúra magnaður bakgrunnur fyrir nánast hvað sem er. Pegasus Panarctica berast fjöldi fyrirspurna á degi hverjum þar sem er afar mikilvægt að geta sett fram upplýsingar í formi mynda og myndskeiða sem væntanlegir viðskiptavinir geta skoðað.

Ef áhugi á samstarfi kviknar þarf að taka saman mikið af sértækum upplýsingum fyrir viðskiptavini sem flestir eru í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Frakklandi, og Bretlandi. Oft þarf að rjúka af stað og taka myndir og setja upp samdægurs á vefnum. Stundum þarf að týna saman 200 myndir af einum stað
frá öllum mögulegum og ómögulegum sjónarhornum sem síðan er sett upp á aðgengilegan hátt á vefnum.

Eftir skoðun á öllum þeim lausnum sem voru í boði til viðhalds vefsvæða ákvað Pegasus Panarctica að nota hið geysiöfluga Eplica kerfi frá Hugsmiðjunni. Það er auðsjáanlega mikil hugsun sem hefur farið í þróun kerfisins bæði hvað varðar tæknilega útfærslu og sveigjanleika. Það var í raun ekkert sem Pegasus Panarctica þurfti sem ekki var þegar til staðar í kerfinu og aðeins þurfti smávægilega sérsmíði til aðlögunnar á framsetningu og afspilun kvikmyndaskráa.

Um leið og gengið var frá samningum var kerfið tilbúið þannig að hægt var að hefja innslátt og innfærslu gagna. Um leið og því ferli lauk var vefsvæðið prófað og síðan sett í loftið. Innanhúss er ábyrgðinni á uppfærslu dreift á 5 aðila sem eftir smá leiðbeiningar taka nú virkan þátt í viðhaldinu.

Við mælum eindregið með eplica kerfinu.

Einar Sveinn Þórðarson
Markaðsstjóri, Pegasus Panarctica

Siggi Hall á Óðinsvéum

Nú get ég loksins uppfært vefsvæðið mitt sjálfur...ef ég bara fylgi uppskriftinni

Siggi Hall
Veitingamaður

Tryggingamiðstöðin

Merki Tryggingamiðstöðvarinnar hfÞað var ljóst þegar Tryggingamiðstöðin leitaði að nýju vefumsjónarkerfi að fyrirtækið þurfi öflugt kerfi þar sem innihald vefsins er orðið mjög viðamikið og tengist að miklu leiti öðrum kerfum. Eftir skoðun á þeim kerfum sem í boði voru leist okkur best á eplica vefumsjónarkerfið frá Hugsmiðjunni. Kerfið er mjög öflugt og bjó yfir öllum þeim kröfum sem við gerðum til vefumsjónarkerfis.

Auðvelt reyndist að tengja við kerfið sértæk vefkerfi s.s. bílalánakerfi, reiknivél og Mitt Öryggi þar sem viðskiptavinir geta skoðað sínar tryggingar og stöðu hjá TM.

Vefurinn er þannig gerður að allir notendur bæði blindir og sjáandi hafa aðgang að efni hans.
Við innleiðingu eplicu veitti Hugsmiðjan framúrskarandi þjónustu.

Við erum ákaflega ánægð með eplica vefumsjónarkerfið frá Hugsmiðjunni.

Anna Ingibergsdóttir
Vefstjóri TM

Þróunarsamvinnustofnun Íslands

"Reynsla Þróunarsamvinnu- stofnar af Eplica vefumsjónarkerfinu hefur verið mjög góð, hvort sem er að vinna með Eplica kerfið í daglegri umsjón á heimasíðu okkar, eða að fá leiðsögn og ráðleggingar frá starfsfólki Hugsmiðjunnar um uppsetningu og notkun kefisins"

Sjöfn Vilhelmsdóttir
Útgáfu- og fræðslustjóri / Information Officer







litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica