Fyrirtækið Hugsmiðjan
Hugsmiðjan er hugbúnaðarfyrirtæki sérhæft í gerð hvers kyns vefsvæða og veflausna
Á farsælum ferli hefur Hugsmiðjan unnið margs konar sérforritunar og samþættingarverkefni fyrir hin ýmsu vefsvæði.
Hugsmiðjan á Eplica-vefumsjónarkerfið, sem er eitt hið öflugasta á markaðnum í dag, og fyrirtækið er leiðandi í smíði vefsvæða á Íslandi.
Hugsmiðjan vinnur einnig að almennri veflægri hugbúnaðargerð og er það ört vaxandi þáttur í starfsemi fyrirtækisins, enda kallar þróun Netsins mjög á slík vinnubrögð.
Fyrirtækið var stofnað árið 2001 en starfsmenn Hugsmiðjunnar hafa unnið að gerð internet-lausna síðan 1997.
Hugsmiðjan hefur unnið með mörgum góðum og kröfuhörðum viðskiptavinum og eru þeir nú orðnir hátt í 200 og vefir sem settir hafa upp fyrir þá í Eplica-kerfinu nálgast töluna 400.
