Samfélagsleg ábyrgð
Sem hópur getum við lagt okkar lóð á vogarskálarnar, samfélaginu til heilla
Við starfsmenn Hugsmiðjunnar erum meðvitaðir um mikilvægi þess að vera virkir þátttakendur í samfélaginu og nýta þekkingu okkar til að láta gott af okkur leiða.
Auk þess að láta sig varða aðgengi fatlaðra að vefjum og þjónustu er Hugsmiðjan virkur þátttakandi í því að styrkja góð málefni.
Við gerum þetta með tvennum hætti.
- Einu sinni á ári gefum við félagasamtökum sem skipta þjóðfélagið miklu máli fullbúinn vef, þ.e. vefkerfi, hönnun, forritun og aðra vinnu.
- Einnig geta félagasamtök sem falla að stefnu okkar í styrktarmálum fengið að nota Eplica-kerfið sér að kostnaðarlausu og borga þá aðeins fyrir vinnu við gerð vefsvæðisins, en á sérstökum kjörum.
Aðilar sem við höfum styrkt með veglegum hætti eru m.a.:
Fullbúinn vefur
- Íslandsdeild Amnesty International. Skoða vef.
- Mannréttindaskrifstofa Íslands. Skoða vef.
- Átak - félag fólks með þroskahömlun. Skoða vef.
Ókeypis vefumsjónarkerfi
- Skemmtivefur Umhyggju. Skoða vef.
- Samtök um kvennaathvarf. Skoða vef.
- Umhyggja, félag sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra. Skoða vef.
- SOS barnaþorpin, alheimssamtök sem hafa það að markmiði að hjálpa munaðarlausum og yfirgefnum börnum án tillits til þjóðernis, stjórnarfars, kynþátta og trúarbragða. Skoða vef.
- Ár fatlaðra.
- Öryrkjabandalag Íslands og aðildarfélög þess. Skoða vef.
Það hafa verið forrréttindi að geta lagt góðum málefnum lið með þessum hætti og er Hugsmiðjan gott dæmi um minni fyrirtæki sem getur tekið virkan þátt í góðgerðarmálum og axlað samfélagslega ábyrgð, ekki síður en stórfyritæki.
