samstarfsaðilar

Traust sambönd tryggja viðskiptavinum okkar bestu lausnina hverju sinni

Hugsmiðjan starfar með traustum samstarfsaðilum að margs konar verkefnum þar sem styrkleikar hvers fyrirtækis eru nýttir, viðskiptavininum til góða.


basis

Basis

Rekstur tölvukerfa, tölvupóstur

Basis er þjónustu- og ráðgjafarfyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem sérhæfir sig í að aðstoða við rekstur tölvukerfa, allt frá því að vera bakland í flóknari verkefnum yfir í að sjá alfarið um hýsingu og rekstur tölvukerfisins.

Basis rekur netþjóna Hugsmiðjunnar og sér um tölvupóstþjónustu fyrir marga viðskiptavini okkar.


Datamarket

Datamarket

Töluleg gögn

Á DataMarket eru tekin saman töluleg gögn frá ýmsum opinberum stofnunum og einkaaðilum og þau gerð aðgengileg á einum stað með samræmdum eiginleikum, s.s. leitarmöguleikum, samanburði, tengingum við fréttaefni og aðra viðburði, og niðurhali gagna til dæmis til notkunar í Excel.


median

Median

Greiðslumiðlun á netinu

Median býður upp á greiðslumiðlun á netinu fyrir stór alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir. Gæði á öllum sviðum er meginþáttur í starfsemi fyrirtækisins sem sýnir sig m.a. í því að Median kappkostar að bjóða þjónustu og lausnir sem eru sniðnar að þörfum viðskiptavinanna.

Medina leggur Hugsmiðjunni til greiðslugátt fyrir þau vefsvæði sem reka vefverslun af einhverju tagi.


sja

Sjá

Aðgengi og vottun vefsvæða

Í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands vottar Sjá aðgengi að vefjum og veitir ráðgjöf um hvernig hvernig má gera vefi sem aðgengilegasta fyrir sem flesta hópa fatlaðra.

Hugsmiðjan leggur mikla áherslu á aðgengismál enda hafa margir vefir sem fyrirtækið hefur gert verið vottaðir. Sjá og Hugsmiðjan hafa átt gott samstarf um þessi mál.


skjal

Skjal

Þýðingar, prófarkalestur, textagerð

Þýðingastofan Skjal er eitt öflugasta fyrirtækið á Íslandi á sviði þýðinga, prófarkalesturs og textagerðar. Sú sérstaða sem Skjal hefur skapað sér, með því að sérsníða starfsemi sína að fjölbreytilegum þörfum samstarfsaðila, á sér fáar hliðstæður hérlendis.

Viðskiptavinir Hugsmiðjunnar geta átt gott og árangursríkt samstarf við Skjal. Oft þarf að þýða heilu vefina, eða hluta þeirra, og mikilvægi þess að vera með allan texta á vönduðu máli verður seint ofmetinn. Sum fyrirtæki þurfa líka á textagerð að halda og Skjal sinnir einnig þeirri þjónustu.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica