Starfsmannastefna Hugsmiðjunnar

Starfsfólk Hugsmiðjunnar er mesti auður fyrirtækisins og það er lykilatriði í rekstrinum að búa eins vel að því og unnt er


Ráðningar

Hugsmiðjan ræður aðeins framúrskarandi starfsfólk á hverju sviði, fólk með fjölbreytilegan bakgrunn og ólíka reynslu. Við ráðningar er m.a. tekið mið af menntun og reynslu, sem og því hvernig talið er að viðkomandi falli inn í þann hóp sem fyrir er. Allir sem hefja störf hjá fyrirtækinu fá góðar móttökur og þeir fá ráðrúm til að kynnast starfsemi fyrirtækisins, auk markvissarar þjálfunar og er það fyrsta skrefið í að efla fólk í starfi.


Starfsumhverfi

Hugsmiðjan býður starfsfólki sínu uppá gott starfsumhverfi án íburðar. Lagt er upp úr því að starfsstöð hvers starfsmanns sé góð og hugað sé að vinnuverndarsjónarmiðum og öryggismálum. Tölvubúnaður starfsmanna skal vera í fremstu röð.

Mikil áhersla er lögð á hreinlæti og snyrtimennsku. Hugsmiðjan stefnir að því að verða reyklaus vinnustaður.


Starfsánægja

Hugsmiðjan leggur áherslu á að vinnustaðurinn sé skemmtilegur og áhugaverður. Jákvætt viðhorf starfsfólks er mikilvægt sem og gagnkvæm virðing. Verkaskipting á að vera þannig að allir fái áhugaverð verkefni við sitt hæfi, en einnig að þau séu hvetjandi og ögrandi og stuðli að þroska og þróun í starfi.

Hugsmiðjan býr einnig að öflugu starfsmannafélagi sem stendur fyrir viðburðum og uppákomum starfsmanna.


Starfskjör

Hugsmiðjan leggur áherslu á að laun og aðbúnaður séu samkeppnishæf. Starfsfólk er metið á eigin forsendum og ákvarðanir um starfskjör taka m.a. mið af menntun, reynslu, frammistöðu, starfi og ábyrgð.

Stjórnendum Hugsmiðjunnar finnst það mikilvægt að starfsfólk geti lokið störfum sínum á venjulegum dagvinnutíma, en leggur jafnframt áherslu á sveigjanleika starfsfólks þegar þær aðstæður koma upp að bregða verður út af þessu.

Vinnutími er sveigjanlegur og áhersla er lögð á að koma til móts við óskir og þarfir starfsfólks hvað hann varðar.

Hægt er að sækja um starf hjá Hugsmiðjunni á vefnum.




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica