Viðskiptaskilmálar
Almennir viðskiptaskilmálar Hugsmiðjunnar ehf.
Viðskiptareikningar
Viðskiptareikningar Hugsmiðjunnar eru mánaðarreikningar þar sem úttektartímabil er hver almanaksmánuður. Gjalddagi á viðskiptareikningi hvers úttektarmánaðar er síðasti dagur sama mánaðar. Eindagi er síðan 20. næsta mánaðar.
Reikningar og rafrænir greiðsluseðlar
Reikningar vegna liðins mánaðar eru sendir viðskiptamönnum í byrjun næsta mánaðar. Viðskiptamönnum ber að gera athugasemdir fyrir 20. dags þess mánaðar. Berist ekki athugasemdir innan þess tíma telst staðan rétt. Rafræn bankakrafa er stofnuð vegna reikninga en greiðsluseðlar eru ekki prentaðir út. Ef óskað er eftir prentuðum greiðsluseðlum skal hafa samband við Hugsmiðjuna.
Vaxtakjör
Sé reikningur ekki greiddur á eindaga sem er 20. næsta mánaðar eftir úttektarmánuð, reiknast dráttarvextir eins og þeir eru auglýstir á hverjum tíma hjá Seðlabanka Íslands, frá og með gjalddaga.
Innheimtukostnaður
Falli skuld í eindaga, áskilur Hugsmiðjan sér rétt til að senda innheimtubréf til ítrekunar á skuldinni. Innheimtubréf hafa í för með sér kostnað sem skuldara ber að greiða. Ef innheimtubréfum er ekki sinnt eða ekki staðið við samninga um greiðslur, þá er viðskiptaskuldin send í áframhaldandi innheimtu.

