Greinar

Elísabet
Elísabet

Samstarf okkar við Hugsmiðjuna við gerð Elísabetar tókst með miklum ágætum. Verkið var unnið í mikilli tímapressu en Hugsmiðjumenn brugðust skjótt og vel við óskum okkar. Þeir komu oftar en ekki fram með lausnir á þeim atriðum sem upp komu sem stóðu framar vonum okkar.

Það var einnig mikils virði fyrir okkur að geta lagt ákveðna hluta vefsins algerlega í þeirra hendur og þar með treyst þeim fyrir útfærslu þeirra. Útkoman varð ekki einungis frábær lausn, elisabet.is, heldur lærðum við líka heilmikið af samstarfinu. Þeir eru, að okkar mati, fremstir á sínu sviði og svo eru þeir líka bráðskemmtilegir.

Brynjólfur Gunnarsson, deildarstjóri hugbúnaðardeildar Tryggingamiðstöðvarinnar hf

Áskorun

Elísabet.is er veflægt sjálfsafgreiðslukerfi fyrir bílatryggingar og bílalán, rekið af Tryggingamiðstöðinni.

Kostnaði er haldið niðri með því að þjónustan er aðeins veitt á vefnum og notendaviðmót verður því að vera skýrt og einfalt. Verkefnið var unnið í töluverðri tímapressu og tók verkferlið mið af því.

Ferli

Elísabet.is byggir á Eplica-kerfinu með tengingum við tryggingagrunn Tryggingamiðstöðvarinnar.

Stofnaður var starfshópur með starfsmönnum frá Hugsmiðjunni, Tryggingamiðstöðinni og fleiri fyrirtækjum og verkefnið að mestu unnið í húsnæði TM.

Vegna hins þrönga tímaramma var unnið eftir vinnuferli innblásnu af "extreme programming" aðferðafræðinni, með tíðum prófunum og fljótandi hönnunarferli.

Til þess að afgreiðslan geti verið að fullu veflæg var lögð áhersla á að forrita í Java sveigjanlega og öfluga viðskiptalógík með samskiptum við tryggingagrunn TM.

Viðmótið var unnið samhliða því sem ferli mótuðust og var prófað jafnóðum.

Niðurstaða

Staðið var við tímaáætlun og þjónustan hlaut strax góðar viðtökur notenda.

Kerfið hefur reynst traust í rekstri og samtengingar við grunna Tryggingamiðstöðvarinnar hafa virkað snuðrulaust.

Þægilegt notendaviðmót Elísabetar hefur hlotið töluvert hrós og markmiðum um að notendur geti afgreitt sig sjálfir var náð strax frá upphafi. Ef um er að ræða nýskráningu bílatryggingar má til dæmis ljúka ferlinu 100% sjálfvirkt á vefnum.







litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica