Greinar
Vinna Hugsmiðjunnar gekk mjög vel og lausnin hefur reynst traust í rekstri. Notendur, sem margir þekktu Eplica frá ytri vefjum ráðuneytanna, hafa einnig verið fljótir að læra á Eplica-viðmótið fyrir innri vef þannig að nýtt efni skilar sér hratt og vel á innri vefinn.
Í rauninni gegnir lausnin veigameira hlutverki strax í upphafi en áætlað var.
Sigurður Davíðsson, verkefnastjóri í Stjórnarráðinu
Áskorun
Nýr innri vefur stjórnarráðsins (með undirvefjum fyrir öll ráðuneyti) byggir á IBM WebSphere portal-lausnum, þar sem portlet-einingar sjá um samskipti við ólík kerfi.
Óskað var eftir því að unnar væru portlet-einingar sem tengdu saman Eplica kerfið og WebSphere til þess að tryggja þægilegt efnisviðhald fyrir tilkynningar, greinar, fréttir og aðra texta.
Slík samtenging þurfti að vera eins lipur og einföld og mögulegt væri.
Ferli
Verkefnið var unnið í samráði við Stjórnarráðið og Nýherja sem sá um uppsetningu WebSphere kerfisins.
Eftir hugmyndavinnu varðandi tæknilega möguleika var ákveðið að búa til samtengingu milli portal-serversins og Eplica kerfisins. Þær tengingar byggja á SSO (Single Sign On), XML þjónustum og AJAX viðmóti.
Settur var upp sérstakur þjónn sem sér um að þjónusta beiðnir frá WebSphere grunninum.
Niðurstaða
Tengingin hefur reynst mjög vel og þar sem efnisvinnsla í Eplica kerfinu er mjög þægileg hefur tæknilegum hindrunum fyrir innsetningu verið rutt úr vegi og notendur hafa verið fljótir að læra á viðmótið og nota það til að skrifa nýtt efni.
Portlet-einingarnar hafa reynst mjög stöðugar og að frátöldum viðbótum og smávægilegum breytingum hefur viðhald verið sama og ekkert. Einingarnar munu væntanlega verða þróaðar enn frekar í náinni framtíð.
Notendur þurfa aðeins að auðkenna sig gagnvart netkerfi tiltekins ráðuneytis. Ef þeir hafa tilskilin réttindi geta þeir farið beint inn í Eplica-stýrða efnisinnsetningu.

