Greinar

Að mínu mati var ein af bestu ákvörðunum okkar við hönnun á G5 kerfinu sú að leita til Hugsmiðjunnar eftir aðstoð við útfærslu á viðmóti kerfisins. Viðmótið er stílhreint og notendavænt, og hefur jafnframt mjög ákveðna skírskotun til gæðaímyndar Marel á sviði tækjabúnaðar.

Vandað útlit gefur fyrirheit um að einnig hafi verið vandað til hönnunar á innviðum og það hjálpar mikið til við sölu á kerfinu þegar væntanlegur kaupandi fer í jákvæðar stellingar um leið og forritið er opnað.

Björn Þorvaldsson, vörustjóri hjá Marel

Áskorun

Marel Production System (MPS) er hugbúnaðarlausn frá Marel sem tengir saman öll þeirra kerfi; stillingar og eftirlit með vinnslulínum, flæði hráefnis, gæðastjórnun, pökkun o.s.frv.

Við smíði á nýjustu útgáfu kerfisins, MPS G5, leitaði Marel eftir samvinnu við Hugsmiðjuna varðandi viðmótshönnun og ráðgjöf um uppbyggingu notendaviðmótsins.

MPS kerfið þarf að vera þýðanlegt á mörg tungumál og styðja við ímynd kerfa Marel sem framleiðslulausna í hæsta gæðaflokki á heimsmælikvarða.

MPS G5 er forritað af hugbúnaðardeild Marel í C# og keyrir í Windows umhverfi.

Annað verkefni nátengt þróun MPS kerfisins er viðmót snertiskjáa (M6000) sem eru hluti af sjálfum framleiðslulínunum og vilja af þeim sökum verða kámugir og óskýrir. Jafnvel eru dæmi um að starfsmenn hafi vanið sig á að nota hnífsodda á skjáinn í eldri útgáfum (með augljósri hættu á skemmdum). Það var því nauðsynlegt að tryggja að allir snertihnappar séu stórir og greinilegir.

Ferli

Viðmótshönnuðir Hugsmiðjunnar unnu verkefnið í nánu samstarfi við hugbúnaðardeild Marel. Hugmyndavinna var unnin í samvinnu fyrirtækjanna og skissur og skjámyndir sendar á milli.

Sett var upp tilraunaumhverfi þar sem Hugsmiðjan gat kynnt sér notkun MPS af eigin raun og hvernig virkni þess er byggð upp. Viðmótshönnuðir okkar komu með tillögur að einföldun ferla og lagfæringum sem var undantekningarlaust vel tekið af hugbúnaðardeild Marel.

Allt útlit MPS G5 tekur mið af öðru ímyndarefni Marel (en útlit vefsvæðis Marel er einmitt hannað af Hugsmiðjunni).

Í hönnun viðmóts fyrir snertiskjáina er lögð áhersla á að það sé einfalt og skemmtilegt í notkun með stórum og skýrum valmyndum. Viðmótið er haft á ljósum grunni til þess að hugsanleg óhreinindi á skjánum trufli síður.

Niðurstaða

Ferlið gekk mjög vel og samvinna fyrirtækjanna var lipur og hnökralaus.

MPS G5 kerfið er þegar í notkun hjá völdum viðskiptavinum og á árinu 2007 mun Marel taka það í notkun hjá öllum sínum viðskiptavinum.

Nýtt viðmót snertiskjánna verður sömuleiðis tekið í notkun á árinu 2007.







litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica