Greinar

Já

Reynsla Já af samstarfi við Hugsmiðjuna hefur hreint út sagt verið frábær. Þeir starfsmenn sem ég hef haft samskipti við hafa lagt sig alla fram, sýnt verkinu mikinn áhuga og fylgt því eftir.

Þeir hafa ekki litið á þetta sem tímabundna vinnu sem var lokið þegar þeir skiluðu CSS-skjölum til næsta aðila heldur hafa þeir fylgst með og komið með hugmyndir til betrumbóta þegar þurft hefur að þeirra mati.

Það að geta leitað til Hugsmiðjunnar með vefinn okkar, þegar þörf er á er dýrmætt í okkar huga.

Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri

Áskorun

Undir hatti er veitt þjónusta sem áður heyrði undir Símaskrána, simaskra.is, 118/1818 o.fl.

Hugsmiðjan kom að endurskoðun á vefnum www.ja.is þar sem hlutverk okkar var að vinna útlit á framsetningu gagna og hafa með höndum gæðaeftirlit.

Aðalmarkmið Já með verkefninu var að auka sýnileika og notkun á "Gulu síðunum" hluta ja.is.

Ferli

Endurvinna vefsvæðisins var unnin í samvinnu margra fyrirtækja. Auk Hugsmiðjunnar komu Spurl, Gagarín og Origo að verkefninu.

Þegar samþykkt útlit lá fyrir sá Hugsmiðjan um vefun (HTML og CSS). Það var svo í höndum Origo að tengja vefunina við undirliggjandi forritunarvirkni.

Hugsmiðjan aðstoðaði Já við að móta hugmyndir um virkni þjónustunnar og skilgreina tæknilega tilhögun, auk þess að sinna gæðaeftirliti með forritun og útfærslum leitarvirkninnar.

Niðurstaða

Árangur af verkefninu hefur verið greinilega merkjanlegur. Uppflettingar á "Gulu síðunum" jókst úr því að vera 3% af umferð um vef Já upp í 25%.

Einnig hækkaði heildarumferð á vefnum mæld af Samræmdri vefmælingu.

Áfram er unnið að frekari þróun vefsvæðis Já og gegnir Hugsmiðjan þar lykilhlutverki.







litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica