Greinar

stillingar.is

Einstök útfærsla á aðgengismálum

Stillingar.is er vefþjónusta sem er hönnuð og rekin af Hugsmiðjunni og er gott dæmi um það hvernig þekking okkar á tækninni annars vegar og áskorunum aðgenglegrar hönnunar hins vegar skapa nýjungar.

Stillingar.is

Áskorun

Mörg vefsvæði eru farin að bjóða notendum upp á að stilla leturstærðir, auk þess að sum bjóða notendum einnig að velja bakgrunnslit og fleira tengt framsetningu. Þessi þróun hefur hingað til einkennst af því að hvert vefsvæði er að leysa málin í sínu horni og notendur þurfa að læra á og velja stillingarmöguleika á hverjum vef fyrir sig.

Grunnhugmyndin að baki Stillingar.is er að halda á einum stað utan um allar séróskir notenda varðandi útlit og framsetningu, og auðvelda þannig rekstraraðilum vefsvæða að koma til móts við þarfir notenda sinna með einföldum og þægilegum hætti.

Ferli

Verkefnið var algerlega unnið af Hugsmiðjunni að undanskilinni þýðingarvinnu, en auðvelt er að þýða þjónustuna á ný tungumál. Hugmyndin að baki þjónustunni hefur verið að gerjast lengi og hefur verkefnið meðal annars verið styrkt af félagsmálaráðuneytinu.

Meðan á hönnun þjónustunnar stóð voru ýmsir hagsmunaaðilar og sérfræðingar í aðgengismálum hafðir með í ráðum varðandi þá stillingarmöguleika sem boðið er upp á.

Einnig hefur frá upphafi verið miðað við að þjónustan sé eins ódýr í notkun og kostur er og helst að hún verði ókeypis fyrir sem flesta.

Rekstur þjónustunnar er því fjármagnaður með lágum mánaðarlegum áskriftargjöldum frá stærri vefsvæðum sem nýta sér þjónustunna. Vefsvæði í eigu einstaklinga, einyrkja, góðgerðasamtaka og smærri félagasamtaka geta hins vegar nýtt sér hana ókeypis.

Mikil áhersla var lögð á að nýta möguleika HTTP staðalsins varðandi cache virkni og annað, til þess að þjónustan væri eins einföld og traust og hægt er.

Niðurstaða

Þjónustan var opnuð af félagsmálaráðherra 16. nóvember 2006 og við lok 2006 buðu á sjöunda tug vefsvæða upp á þjónustuna, þar á meðal öll vefsvæði stjórnarráðsins.

Stillingar.is hlaut strax góðar undirtektir hagsmunaaðila og hafa ýmsir orðið til að hrósa hugmyndinni og útfærslu hennar.

Tæknileg útfærsla

Tæknileg uppbygging þjónustunnar byggir í stuttu máli á því að óskir notenda eru skráðar í "smáköku" (e. browser cookie) útgefinni af minar.stillingar.is.

Vefsvæði sem vilja nýta sér þjónustuna gera það með einföldum HTTP samskiptum við minar.stillingar.is sem afhendir með sjálfvirkum, stöðluðum hætti innihald stillinga-smáköku viðkomandi notanda. Þannig geta ólík vefsvæði fengið lifandi aðgang að einni og sömu stillinga-smákökunni.

Stillingar.is býður viðskiptavinum sínum upp á fjölmargar mismunandi þjónustur - allt frá því að afhenda stillinga-upplýsingarnar á mismunandi gagnaformi (URL- , javascript breytur, eða einfalt CSS), upp í það að miðla stöðluðum forritunar- og viðmótslausnum, á borð við javascript sem litar sérhljóða í texta, og "Mínar stillingar" javascript hnapp sem gerir hvaða vefsvæði sem er kleyft að nýta sér þjónustuna á innan við 2 mínútum.

Ef ekki eru til staðar þegar skráðar óskir, eða ef notendur vilja breyta áður tilgreindum stillingum, sér þjónustan um að opna eyðublað með valmöguleikum á réttu tungumáli.

Það er undir eigendum hvers vefsvæðis komið hvernig það nýtir sér þessar upplýsingar og með hvaða hætti það kýs að koma til móts við óskir notenda sinna. Þjónustan Stillingar.is sér í raun aðeins um miðlun óskanna, en setur engin skilyrði um hvernig þær eru nýttar.


Snilldin að baki Stillingum

Það er margt við útfærsluna á Stillingum.is sem við getum hreykt okkur af og gerir þjónustuna einstaka á heimsmælikvarða:

  • Notendur þurfa aðeins að tiltaka óskir sínar einu sinni í hverjum vafra
  • Boðið er upp á stillingarmöguleika sem taka mið af ólíkum tegundum lestrarörðugleika, en sem eru jafnframt einfaldaðir til hins ýtrasta til að auðvelt sé að forrita gagnvart þeim
  • Skynsamleg notkun á léttum HTTP samskiptum, cache-stillingum og "smákökum", tryggir að Stillingar.is getur auðveldlega starfað undir mjög miklu álagi
  • Einfaldar, sveigjanlegar og vel skjalaðar vefþjónustur skila upplýsingum á því formi sem óskað er; sem URL-breytum, CSS skjali eða javascript breytum
  • Úrslitavaldið um útfærslu birtingarinnar er í höndum hvers vefsvæðis
  • Boðið upp á einfaldan kóða fyrir javascript "hnapp" til að afrita inn á hvaða vefsíðu sem er, og þannig má nýta sér þjónustu Stillingar.is á innan við 2 mínútum.
  • Allt þjónustuviðmót gagnvart vefnotendum er í boði á mörgum tungumálum, og hægt er að bæta við nýjum tungumálum með lítilli fyrirhöfn.

Nánar má lesa um notkun þjónustunnar á vefsvæði Stillingar.is.







litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica