Umsagnir viðskiptavina

Okkar helsta stolt eru (viðskipta) vinirnir sem við höfum eignast gegnum tíðina

Hugsmiðjan er stolt yfir viðskiptavinum sínum og við leggjum okkur fram um að sinna þeim eins vel og við getum. Eftirfararandi eru nokkrar umsagnir um samvinnuna við okkur.


Bakkavör Group

Hugsmiðjan hefur reynst okkur ótrúlega vel í uppbyggingu á nýrri heimasíðu félagsins. Eplica kerfið er ótrúlega þægilegt í notkun auk þess sem þjónustan hjá Hugsmiðjunni er framúrskarandi. Allt hefur staðið eins og stafur á bók og hafa starfsmenn Hugsmiðjunnar brugðist fljótt og vel við öllum óskum okkar.

Jóna Pétursdóttir, almannatengill og vefstjóri Bakkavör Group


Kreditkort hf.

Aðalástæður þess að við völdum Eplica vefumsjónarkerfið er hve auðvelt, einfalt og fljótlegt er að setja inn og viðhalda efni í kerfinu. Stuttur kennsluferill hefur ótvíðræða kosti þegar margir aðilar koma að viðhaldi eins vefs. Í okkar tilfelli hefur það tekið innan við klukkustund að kenna nýjum notendum á kerfið. Textaritill Eplica er sá fullkomnasti og þægilegasti sem ég hef séð og sá eini þar sem notendur sjá efnið í raunútliti á meðan vinnslu þess stendur.

Hugsmiðjan hefur hóp öflugra forritara og grafískra hönnuða með mikla reynslu sem kemur sér vel þegar smíða þarf sérlausnir eins og við höfum þurft að gera á okkar vefjum. Við hjá Kreditkorti höfum notað Eplica vefumsjónarkerfið í rúm 2 ár og gefum því hiklaust okkar meðmæli.

Sveinbjörn Grétarsson, vefstjóri Kreditkorts hf.


Marel hf.

Hugsmiðjan hefur í alla staði reynst frábær samstarfsaðili í þeim verkefnum sem ég hef tekið þátt í að vinna með þeim. Starfsmenn fyrirtækisins eru fagmenn með framtíðarsýn og þeir vita nákvæmlega hvað snýr upp og niður í hönnun og þróun vefsvæða.

Haraldur Gunnlaugsson, Online Marketing Manager, Marel hf.


Seltjarnarnesbær

Seltjarnarnesbær valdi vefkerfi Hugsmiðjunnar eftir ítarlega þarfagreiningu. Við erum ánægð með valið því kerfið er bæði auðvelt í notkun og sveigjanlegt. Þjónusta Hugsmiðjunnar hefur einnig reynst snögg og góð. Ég get því hiklaust gefið fyrirtækinu og vefkerfinu mín bestu meðmæli.

Óskar J. Sandholt, framkvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs Seltjarnarnesbæjar


Ferðaskrifstofa Íslands

Þegar við hjá Ferðskrifstofu Íslands ákváðum að endurnýja vefsvæði félagsins varð Eplica kerfi Hugsmiðjunar fyrir valinu. Fjölmargir þættir réðu vali okkar á Eplica sem lausn fyrir vefþjónustur Ferðaskrifstofu Íslands. Fyrst má nefna þá staðreynd að kerfið byggir á traustum tæknilegum grunni sem féll einkar vel að uppbyggingu vefþjónustu fyrirtækja í eigu Flugleiða samsteypunnar.

Jafnframt teljum við að sú áhersla á gæði sem Hugsmiðjan hefur að leiðarljósi við þróun og endurbætur á Eplica vefumsjónarkerfinu afar mikilvæga fyrir okkur. Gildir þetta bæði um rekstrarþátt kerfisins og ekki síður þau notendaskil sem kerfið býður þeim sem ætlað er að sjá um viðhald og endurbætur á vefþjónustum okkar.

Við virkjum allt starfsfólk okkar í umsjón og viðhald á þeim vefsvæðum sem við höldum úti og það er því afar mikilvægt að tryggja að það sé bæði þægilegt og einfalt að uppfæra og breyta efni eftir því sem við á. Jafnframt höfum við notið góðs af þjónustu Hugsmiðjunar við þróun á vefnum. Áhersla okkar er á notkun W3C staðla í allri vefþróun okkar, enda viljum við tryggja aðgengi sem allra flestra að vefþjónustum okkar. Nú þegar er ljóst að árangurinn af þessu samstarfi hefur orðið til þess að vefsala ferðaskrifstofunnar hefur staðist væntingar og gott betur.

Sigmundur Halldórsson, vefstjóri Ferðaskrifstofu Íslands


Framhaldsskóli Snæfellinga

Við erum mjög ánægð með vefinn, bæði er einfalt og auðvelt að setja efni inn á hann, breyta og laga. Þegar við höfum þurft á aðstoð að halda hefur hún verið auðfengin hjá þeim Hugsmiðjumönnum því þeir eru mjög liprir og snöggir að bjarga málunum.

Einnig má nefna að vefnum hefur bæði verið hrósað fyrir skemmtilegt útlit og þægilegt aðgengi að hinum ýmsu köflum hans.

Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari


Global Event Network

Það kom mér skemtilega á óvart hversu stuttan tima það tók að gera þennan vef og hversu auðvelt ég á með að uppfæra hann.

Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri


Íslandsdeild Amnesty International

Eplica er þægilegt í notkun, og okkur tekst prýðilega að halda út lifandi vef, eftir að ákveðinni grunnfærni hefur verið náð. Við erum nú að ná meiri árangri á vefnum okkar nú en nokkru sinni fyrr.

Torfi Jónsson, verkefnastjóri, Íslandsdeild Amnesty International


Kvennaathvarfið

Eplica gerir Samtökum um kvennaathvarf mögulegt að halda úti öflugum netmiðli og mætir okkar þörfum fullkomlega í því tilliti. Góður hugbúnaður og skjót sem þægileg þjónusta hefur einkennt Hugsmiðjuna og gerir öll samskipti hin ánægjulegustu.

Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdarstýra Samtaka um kvennaathvarf


Námsgagnastofnun

Námsgagnstofnun valdi Eplica vefumsjónarkerfið vegna þess hversu sveigjanlegt það er. Kerfið er auðvelt í notkun og gefur mikla möguleika á að laga vefinn að hugsanlegum breytingum í framtíðinni. Samskipti við starfsmenn Hugsmiðjunnar hafa verið einkar ánægjuleg.

Hildigunnur Halldórsdóttir, tölvunarfræðingur Námsgagnastofnun


Pegasus Panarctica

Eftir skoðun á öllum þeim lausnum sem voru í boði til viðhalds vefsvæða ákvað Pegasus Panarctica að nota hið geysiöfluga Eplica kerfi frá Hugsmiðjunni. Það er auðsjáanlega mikil hugsun sem hefur farið í þróun kerfisins bæði hvað varðar tæknilega útfærslu og sveigjanleika. Það var í raun ekkert sem Pegasus Panarctica þurfti sem ekki var þegar til staðar í kerfinu og aðeins þurfti smávægilega sérsmíði til aðlögunnar á framsetningu og afspilun kvikmyndaskráa.

Um leið og gengið var frá samningum var kerfið tilbúið þannig að hægt var að hefja innslátt og innfærslu gagna. Þegar því ferli lauk var vefsvæðið prófað og síðan sett í loftið. Innanhúss er ábyrgðinni á uppfærslu dreift á 5 aðila sem eftir smá leiðbeiningar taka nú virkan þátt í viðhaldinu.

Við mælum eindregið með Eplica kerfinu.

Einar Sveinn Þórðarson, markaðsstjóri Pegasus Panarctica


Siggi Hall á Óðinsvéum

Nú get ég loksins uppfært vefsvæðið mitt sjálfur... ef ég bara fylgi uppskriftinni.

Siggi Hall, veitingamaður


Tryggingamiðstöðin

Það var ljóst þegar Tryggingamiðstöðin leitaði að nýju vefumsjónarkerfi að fyrirtækið þurfi öflugt kerfi þar sem innihald vefsins er orðið mjög viðamikið og tengist að miklu leiti öðrum kerfum. Eftir skoðun á þeim kerfum sem í boði voru leist okkur best á Eplica vefumsjónarkerfið frá Hugsmiðjunni. Kerfið er mjög öflugt og bjó yfir öllum þeim kröfum sem við gerðum til vefumsjónarkerfis.

Auðvelt reyndist að tengja við kerfið sértæk vefkerfi s.s. bílalánakerfi, reiknivél og Mitt Öryggi þar sem viðskiptavinir geta skoðað sínar tryggingar og stöðu hjá TM. Vefurinn er þannig gerður að allir notendur bæði blindir og sjáandi hafa aðgang að efni hans.

Við innleiðingu Eplicu veitti Hugsmiðjan framúrskarandi þjónustu. Við erum ákaflega ánægð með Eplica vefumsjónarkerfið frá Hugsmiðjunni.

Anna Ingibergsdóttir, vefstjóri TM


Þróunarsamvinnustofnun Íslands

Reynsla Þróunarsamvinnustofnar af Eplica vefumsjónarkerfinu hefur verið mjög góð, hvort sem er að vinna með Eplica kerfið í daglegri umsjón á heimasíðu okkar, eða að fá leiðsögn og ráðleggingar frá starfsfólki Hugsmiðjunnar um uppsetningu og notkun kefisins

Sjöfn Vilhelmsdóttir, útgáfu- og fræðslustjóri / Information Officer







litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica