Örykjabandalag Íslands
Örykjabandalag Íslands var stofnað árið 1961. Stofnfélögin voru sex, en nú eru aðildarfélög bandalagsins 29. Fulltrúar allra félaganna sitja í stjórn Ö.B.Í.
Tilgangur Öryrkjabandalagsins er:
- Að vera sameiningarafl aðildarfélaganna, sem stofnuð hafa verið í þeim tilgangi að skapa fötluðu fólki betra líf.
- Að vera bakhjarl félaganna við öflun þekkingar og miðlun upplýsinga til fatlaðs fólks og aðstandenda þess.
- Að vera aflvaki nýrra leiða sem geta orðið fötluðum til framdráttar.
- Að vinna að auknum skilningi almennings á eðli fötlunar, þörfum fatlaðs fólks og réttmætum kröfum til lífsgæða.
- Að vera sameiginlegur málsvari einstaklinga og fjölskyldna sem eiga misjafnlega gott með að berjast fyrir hagsmunum sínum.
- Að vera hinu opinbera ráðgefandi varðandi réttindamál fatlaðra.
| Þjónustuflokkar fyrirtækis |
Tengiliður fyrirtækis |
| Félagasamtök |
|