Samtök fjármálafyrirtækja
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) eru heildarsamtök fjármálafyrirtækja á Íslandi. Aðildarfélög SFF eru viðskiptabankar, fjárfestingarbankar, sparisjóðir, tryggingafélög, verðbréfafyrirtæki, eignaleigur og kortafélög. Aðildarfélög SFF í árslok 2007 voru 42 talsins.
Meginverkefni SFF eru að tryggja samkeppnishæf starfsskilyrði fyrir fjármálafyrirtæki á Íslandi og vera upplýsingaveita um íslenska fjármálageirann. SFF halda úti ýmsum sérfræðihópum fulltrúa aðildarfélaga, sem hafa það hlutverk að leggja línur hvað varðar afstöðu fjármálageirans til laga og reglna sem samtökin fá send til umsagnar, móta afstöðu til mála í vinnslu hjá ESB og alþjóðastofnunum og taka að eigin frumkvæði upp mál sem geta varðað íslensk fjármálafyrirtæki miklu. Mikilvægi greiðs aðgengis erlendra aðila að upplýsingum um stöðu íslensks fjármálageira er sífellt að verða meira, og SFF ætla sér að sinna því hlutverki vel sem og að fræða innlenda aðila um mikilvægi fjármálageirans fyrir íslenskt samfélag.
| Þjónustuflokkar fyrirtækis |
Tengiliður fyrirtækis |
| Félagasamtök |
|