Félagsamtök

sus

Samband ungra sjálfstæðsmanna

SUS

Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) er samband allra svæðisbundnu sjálfstæðisfélaga ungs fólks á aldrinum 15 til 35 ára. Félögin eru 38 talsins, þar af er Heimdallur í Reykjavík stærsta félagið, sem rekur vefinn Frelsi.is. Um 9000 ungir sjálfstæðismenn eiga aðild að sambandinu, sem var stofnað á Þingvöllum 27. júní árið 1930.
  • Heimilisfang: Háaleitisbraut 1
  •   105 Reykjavík
  • Sími: 515 1700
  • Fax: 515 1717
  • Heimasíða: www.sus.is
Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) er samband allra svæðisbundnu sjálfstæðisfélaga ungs fólks á aldrinum 15 til 35 ára. Félögin eru 38 talsins, þar af er Heimdallur í Reykjavík stærsta félagið, sem rekur vefinn Frelsi.is. Um 9000 ungir sjálfstæðismenn eiga aðild að sambandinu, sem var stofnað á Þingvöllum 27. júní árið 1930. Sambandsþing eru haldin annað hvert ár í ágúst eða september þar sem formaður og 26 stjórnarmenn úr öllum kjördæmum landsins eru kjörnir til tveggja ára. Þess á milli eru haldin málefnaþing. Stjórnin hittist að jafnaði mánaðarlega. Fimm manna framkvæmdastjórn, sem fer með daglegan rekstur sambandsins kemur saman vikulega. Skrifstofa sambandins er í Valhöll við Háaleitisbraut 1. SUS hefur í yfir 50 ár gefið út tímaritið STEFNI. Stefnir er tímarit um stjórnmál og þjóðmál og er eina rit sinnar tegundar sem enn kemur út á Íslandi. SUS hefur ávallt tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi og á aðild að Nordisk Ungkonservativ Union (NUU), Democratic Youth Community of Europe (DEMYC), International Young Democrat Union (IYDU) og European Young Conservatives (EYC).



litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica