Fyrirtæki

jl

Jónsson Le´macks

Jónsson Le´macks er ein af allra framsæknustu auglýsingastofum landsins eins og vefurinn þeirra ber glöggt vitni. Nágun stofunnar á markaðinn er mjög skýr og skorinort, eða eins og þeir segir á vefnum þeirra.

„Það er okkar trú að fólk sé ekki fífl. Auglýsingar eiga þess vegna ekki að gera lítið úr greind fólks og tala niður til þeirra með grunnum og heimskulegum skilaboðum. Athygli er ekki það sama og áhugi.

Við leggjum mikla áherslu á að skilja sérstöðu og ábata þeirrar vöru sem við erum að selja. Oft er það ekki eins augljóst og það hljómar.

Við erum sannfærðir um að aðeins þannig getum við kveikt raunverulegan áhuga á vörunni og skapað ný viðskipti.“

Jónsson & Le’macks vinnur eftir einföldu ferli:

  • 1. Skilgreining markaðsstrategíu og markmið.
  • 2. Skilgreining skilaboða sem geta náð þeim markmiðum.
  • 3. Skilaboðunum breytt í góðar auglýsingar.
  • 4. Árangursmat.



litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica