Fyrirtæki

rikid

Forsætisráðuneytið

Forsætisráðuneytið fer með mál er varða

  1. Stjórnskipan lýðveldisins og stjórnarfar almennt.
  2. Embætti forseta Íslands og embættisbústað.
  3. Ríkisráð Íslands.
  4. Alþingi.
  5. Skipun ráðherra og lausn.
  6. Skiptingu starfa milli ráðherra og ráðuneyta.
  7. Ríkisstjórn og Stjórnarráð Íslands í heild, þar á meðal ráðstöfun skrifstofuhúsa og gestahúsa ríkisstjórnarinnar.
  8. Fána Íslands, ríkisskjaldarmerki og þjóðsöng Íslendinga.
  9. Hina íslensku fálkaorðu og önnur heiðursmerki.
  10. Þjóðlendur.
  11. Þingvelli og Þingvallaþjóðgarð.
  12. Hagstjórn almennt.
  13. Vísinda- og tækniráð.
  14. Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF).
  15. Embætti ríkislögmanns.
  16. Umboðsmann barna.

Auk framangreinds fer ráðuneytið með ýmis málefni og tilfallandi verkefni er tengjast stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar og samræmingu og samráð er lýtur að samstarfi ráðuneyta á ýmsum sviðum.

Norðurlandaskrifstofa, sem sinnir þverfaglegum málefnum varðandi norrænt samstarf á vegum ríkisstjórnar Íslands, heyrir undir forsætisráðuneytið. Hvað varðar málefni aðstoðar hún þann ráðherra í ríkisstjórninni sem falið er að fara með norrænt samstarf, samstarfsráðherra Norðurlanda.

Einnig heyrir skrifstofa upplýsingasamfélagsins undir forsætisráðuneytið.

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Ríki og sveitafélög




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica