Fyrirtæki

marel

Marel

Fyrirtækið er í forystu á alþjóðlegum markaði í vinnslutækni, þróun og framleiðslu á skipavogum, skurðarvélum og þyngdar- og sjónflokkunareiningum fyrir fiskvinnslu og annan matvælaiðnað.

Sérstaða Marels hf. felst í þeirri tækni sem þróuð hefur verið hjá fyrirtækinu t.d. í þrívíddar tölvusjón, rafeindavogum og hugbúnaði sem tengir sjálfvirkar vélar og vinnslulínur. Framleiðsluvörur Marels byggjast á hátækni og gæðum þar sem viðskiptavinurinn hefur forgang.

Fyrirtækið hefur byggt upp öflugt markaðs- og þjónustunet fyrir framleiðsluvörur sínar og nær það til allra helstu markaðssvæða. Vöxtur Marels hefur verið jafn og þéttur á undanförnum árum, bæði í krafti öflugs vöruþróunarstarfs, þar sem fyrirtækið er í fararbroddi en einnig með miklu uppbyggingarstarfi og fjárfestingum erlendis.

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Fyrirtæki




litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica