Fyrirtæki

byggdarstofnun

Byggðastofnun

Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, skipuleggur og fjármagnar verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í landinu.
Byggðastofnun vinnur að stefnumótandi byggðaáætlun fyrir allt landið í samráði við iðnaðarráðherra. Áætlunin skal gera grein fyrir ástandi og horfum í þróun byggðar í landinu og lýsa markmiðum og stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Í samræmi við hlutverk stofnunarinnar veitir hún lán eða annan fjárhagslegan stuðning í því skyni meðal annars að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum og koma í veg fyrir að óæskileg byggðaröskun eigi sér stað eða að lífvænlegar byggðir fari í eyði. Byggðastofnun heyrir undir iðnaðarráðherra sem skipar sjö menn í stjórn stofnunarinnar til eins árs í senn.



litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica